Apríl var hlýr og hiti yfir meðallagi á landinu öllu ef horft er til áranna 1991 til 2020. Sólin lék við íbúa Norðurlands. Vetrarveður, hvassviðri og úrkoma settu þó strik í reikninginn víða um land, sér í lagi fyrri hluta mánaðar.Þetta kemur fram í mánaðaryfirliti Veðurstofu Íslands þar sem greint er frá tíðarfari á landinu öllu í apríl.Þar kemur fram að hlýjast hafi verið á Norðausturlandi í aprílmánuði en kaldara á suðvesturhorninu. Í upphafi mánaðar ríkti talsvert vetrarveður; þá var kalt og snjóþyngsli og hvassviðri ollu samgöngutruflunum á landinu öllu.Á sama tíma gekk mikið eldingaveður yfir sunnanvert landið sem sló út rafmagni á stóru svæði. Fyrri hluti mánaðar var sérlega úrkomusamur en seinni hlutinn þurrari. HITI TÆPLEGA TUTTUGU STIG Á AKUREYRI Í byrjun aprílmánaðar var óven