Stjórnvöld í Ísrael og Líbanon ætla að senda fulltrúa til viðræðna í Bandaríkjunum í næstu viku, samkvæmt heimildum Al Jazeera. Ísraelsher heldur áfram að skipa íbúum í suðurhluta Líbanon að yfirgefa heimili sín og sakar Hezbollah um brot á vopnahléi sem var samþykkt um miðjan apríl.Stjórnvöld í Líbanon segja Ísraelsher hafa drepið um 2.700 manns frá því í byrjun mars.Lítið hefur frést af mögulegum friðarsamningi Bandaríkjanna og Íran, stjórnvöld í Íran hafa enn ekki svarað tillögum Bandaríkjanna.Ummerki loftárásar Ísraelshers í Beirút höfuðborg Líbanon.EPA / Stringer