Flugmaður sem starfaði hjá Icelandair í 43 ár segist telja að félagið vilji komast yfir flugrekstrarleyfi Play á Möltu til að spara sér starfsmannakostnað. Hann heitir Ágúst Håkonsson og vann hann hjá Icelandair frá því árið 1983 og þar til í febrúar á þessu ári. „Ég get ímyndað mér að það sé helst vegna þess að þeir sjá fyrir sér að ráða starfsfólk á staðnum á contract-kjörum eða starfsmannaleigukjörum sem þeir geta þá ráðið og rekið eftir hentugleikum á hverjum tíma,“ segir Ágúst.Sagt var frá þessum fyrirætlunum Icelandair í byrjun apríl og vöktu tíðindin mikla athygli.Helsta ástæðan fyrir þessari athygli sem tíðindin fengu var sú að sá grunur vaknaði að Icelandair ætlaði sér með þessu að fara að stunda félagsleg undirboð gegn starfsfólki og losna undan kostnaði við kjarasamninga starfsf