Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 13,6 prósent, sem er í báðum tilvikum yfir spám greinenda fyrir fjórðunginn. Aukning í vaxtatekjum, sem var rúmum 11 prósentum yfir spám greinenda, skýrir að stórum hluta aukinn hagnað samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs.