MUGISON – KÚREKINN (ÉG TRÚI Á LYGINA) Örn Elías Guðmundsson, sennilega betur þekktur sem Mugison, sendi í lok apríl frá sér lagið Kúrekinn (ég trúi á lygina). Hann hefur lengi langað til að gera fyndið og skemmtilegt lag eða svona alvöru trallara og er nú að láta drauminn rætast. Innblástur sækir hann í Ladda, Björgvin og Spilverk þjóðanna og vonar það besta. ALDÍS FJÓLA – RAUÐAROK Rauðarok er lag eftir Halldór Sveinsson með texta eftir Aldísi Fjólu og er þriðja lag af væntanlegri plötu þeirra. Textinn fjallar um að standa af sér þá storma sem koma upp og halda áfram. Um upptöku sá Stefán Örn Gunnlaugsson í Stúdíó Bambus og Sigurdór Guðmundsson hjá Skonrokk Studios hljómjafnaði. AUÐUNN LÚTHERSSON – CALIFORNIAN! DANGER! WOMAN! Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson er enn búsettur í Ban