Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bruni í Hollandi veldur Herjólfi vandræðum

Bókunarvél Herjólfs liggur niðri vegna elds í hollensku gagnaveri sem eigandi vélarinnar hýsir kerfi sitt í. Eldur kviknaði í verinu, sem staðsett er í Amsterdam, í morgun og unnið er að því að slökkva hann.Í tilkynningu á Facebook-síðu Herjólfs segir að öll fjarskipti til svæðisins liggi niðri í augnablikinu. „Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar næstu daga, við komum til með að gefa frá okkur tilkynningu vegna siglinga um leið og starfsmenn okkar komast inn í bókunarkerfið.“Siglingar Herjólfs hafa verið nokkrum vandkvæðum bundnar það sem af er ári. Ferjan hefur ekki getað siglt til Landeyjahafnar mestallt þetta ár vegna sandburðar. Þá bilaði annar rafmótor Herjólfs í síðasta mánuði og er nú í viðgerð í Hollandi.Á þriðjudag tókst að hefja siglingar á ný til Landeyjahafnar.
Bruni í Hollandi veldur Herjólfi vandræðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta