Shivon Zilis, fyrrverandi stjórnarmaður í gervigreindarfyrirtækinu OpenAI, segir að auðkýfingurinn Elon Musk hafi boðið henni gjafasæði árið 2020 og í framhaldinu feðrað fjögur börn hennar.Þetta kom fram í vitnisburði hennar í gær í máli Musks á hendur OpenAI.Hann reynir nú að fá því hnekkt fyrir dómstólum að OpenAI verði áfram hagnaðardrifið fyrirtæki. Hann tók þátt í því að stofna OpenAI árið 2015 og sat í stjórn fyrirtækisins til 2018.Zilis hefur um árabil starfað sem áhættufjárfestir í Kísildal og verið hátt sett í tveimur fyrirtækjum Musks, Teslu og Neuralink. Hún sat í stjórn OpenAI 2020-2023.Hún segir að þau Musk hafi átt í ástarsambandi fyrir um áratug. Hann hafi boðið henni gjafasæði árið 2020, eftir að sambandinu lauk. Elon Musk á að minnsta kosti 14 börn með fjórum konum. ÆTLU