Þrjár konur sem dvalið hafa um árabil í búðum fyrir fjölskyldur erlendra vígamanna Íslamska ríkisins voru handteknar þegar þær lentu í Ástralíu í dag. Ein var ákærð fyrir hryðjuverkastarfsemi og hinar tvær fyrir þrælahald. Konurnar eru hluti af stærri hópi kvenna frá Ástralíu sem ferðuðust á sínum tíma til Sýrlands til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og börn þeirra.