Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir í einangrun í Singapúr og einn í Danmörku

Danskur ríkisborgari sem var farþegi á skemmtiferðaskipinu Hondiusi, þar sem hantaveira greindist, er í sjálfskipaðri einangrun í Kaupmannahöfn. Tveir íbúar Singapúr eru einnig í einangrun.Að sögn danskra heilbrigðisyfirvalda fór danski ríkisborgarinn frá borði 24. apríl og sýnir engin einkenni smits. Hvorki er greint frá aldri né kyni manneskjunnar, sem sneri aftur til Danmerkur í lok apríl og er ekki sögð hafa umgengist fólkið sem smitaðist.Þá greina heilbrigðisyfirvöld í Singapúr frá því að tveir íbúar þar, sem voru um borð í Hondiusi, séu í einangrun. Búið sé að skima þá fyrir hantaveiru en niðurstöður ekki enn ljósar.Í ljós hefur komið að 29 farþegar Hondiusar fóru úr skipinu á eyjunni Sankti Helenu fyrir tæpum tveimur vikum. Fyrirtækið sem rekur Hondius segir að búið sé að hafa samba
Tveir í einangrun í Singapúr og einn í Danmörku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta