Bílstjóri sem velti bíl á Snæfellsnesi í október hefur verið ákærður vegna lögbrota í tengslum við þá ökuferð. Lögreglan á Vesturlandi ákærði manninn fyrir að aka í atvinnuskyni án leyfis og fyrir að stunda ferðaþjónustu án þess að hafa til þess leyfi.Bílstjórinn reyndist vera erlendur ríkisborgari sem býr ekki hér á landi og hafði ekki rekstrarleyfi til að stunda farþegaflutninga í atvinnuskyni hér á landi. Lögregla segir að hann hafi þó ekið með farþega gegn gjaldi daginn í október þegar bíllinn endaði utan vegar. Samkvæmt skráningarnúmeri bílsins ók maðurinn Land Rover Discovery.Ákæran á hendur manninum var birt í Lögbirtingablaðinu í dag. Það þýðir að ekki hefur tekist að birta honum hana í persónu. Maðurinn er kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dóm