Forval Repúblikana í Indiana fyrir þingkosningarnar í haust er enn ein sönnun þess að Donald Trump hefur ekki misst tangarhald sitt á flokknum. Trump og hans fólki tókst að refsa næstum því öllum meðlimum flokksins í öldungadeild ríkisþings Indiana, sem neituðu að verða við kröfu forsetans um að teikna ný kjördæmi í ríkinu, Repúblikönum í vil, fyrir komandi kosningar.