Dóra Jóhannsdóttir hefur náð samkomulagi við framleiðslufyrirtækið Glassriver vegna sjónvarpsseríunnar Húsó, sem var skrifuð af henni og byggði á hennar eigin reynslu. Dóra hefur barist fyrir því síðustu þrjú ár að höfundaréttur hennar og réttur til nafngreiningar í þáttunum yrði virtur. Greiðsla hafi farið fram en lítið standi eftir sökum lögfræðikostnaðar.