Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sýnist að komið sé að kvótasetningu náttúrunnar

Hótel- og baðlónsframkvæmdir Bláa lónsins í Þjórsárdal eru til marks um kvótasetningu náttúrunnar og sýna skort á stefnu stjórnvalda í umhverfisvernd, segir framkvæmdastjóri Landverndar.Samtökin hafa frá upphafi gert ýmsar athugasemdir við tuttugu milljarða uppbyggingu Bláa lónsins í Þjórsárdal sem reisir þar hótel og baðlón, ekki síst við að hluti hennar sé á friðuðum svæðum.Framkvæmdir eru vel á veg komnar, fyrirtækið skrifaði undir sérleyfis- og lóðaleigusamninga við ríkið í gær og starfsemi hefst á næsta ári. BLÁA LÓNIÐ ER EKKI STÓRA MÁLIÐ Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir áhyggjur samtakanna hafa raungerst. „Stóra málið í þessu er ekki fyrirtækið Bláa lónið heldur prinsipp stjórnvalda og stefna stjórnvalda. Eða hugsanlega skortur á henni,“ segir Björg Eva
Sýnist að komið sé að kvótasetningu náttúrunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta