Lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynnti bæjarbúum á Akureyri í gærkvöldi að þó nokkrir selir hefðu gert sig heimakomna á Pollinum við bæinn. Einn selskópur hafði gerst svo kræfur að koma upp á land og varaði lögreglan við því að fara of nálægt og deildi með bæjarbúum leiðbeiningum frá Selasetrinu um hvernig ætti að nálgast eða hegða sér í kringum seli.Í morgun var þó enginn selur sjáanlegur á landi en átta stykki lágu í leti þegar ljósmyndara bar að garði og aðrir þrír voru svamlandi í kringum þá.Selir eru ekki algeng sjón svo nærri landi í Eyjafirðinum. Svo óalgengir að lögreglunni þótti nauðsynlegt að láta bæjarbúa vita hvernig ætti að haga sér í kringum þá og vara við því að þeir gætu verið hættulegir fólki. Þá girti lögreglan svæðið af í gærkvöldi en í morgun var selurinn farinn aftur