Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðil sinn, X, í september 2025 að hann hefði átt gott samtal við skapara tölvuleiksins Eve Online um möguleikann á að vinna saman að gervigreindarleik. Að einhverju sem aðeins gervigreind gæti gert.Færslan setti allt á hliðina hjá CCP, framleiðanda EVE Online. Á aðeins tveimur klukkustundum rauk verðið á móðurfyrirtæki CCP, Pearl Abyss, upp um 10%, nokkuð sem hafði aldrei gerst áður í langri sögu þess. Samstarfsaðilar CCP í Asíu urðu strax rosalega spenntir og sýndu þessu mikil og jákvæð viðbrögð. Svo komu viðbrögð frá Bandaríkjunum, Evrópu og starfsfólki CCP. Þá varð allt vitlaust.„Ég bar ekkert skynbragð á það hvað þessi maður vekur upp mikið af viðbrögðum hjá fólki, í báðar áttir,“ segir Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP, nú Fenris Creations.Eftir færs