Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hófu þungaflutninga á vindmyllum í nótt

Þungaflutningar á efniviði í vindmyllur í fyrsta vindorkuver landsins, Vaðölduver, hófust í nótt. Farin er rúmlega 130 kílómetra leið, frá Þorlákshöfn að Vaðölduveri, þar sem stendur til að reisa 28 vindmyllur á næstu árum.Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri Vaðölduvers, sagði við upphaf flutninga að fimm trukkar flyttu tvo stóra spaða, turnhluta og annan búnað vegna fyrstu vindmyllunnar. Þrjár ferðir verða farnar með hverja vindmyllu. Vindmyllurnar verða fjórtán talsins að þessu sinni.Umfangsmiklir flutningar á stórum vindmyllum fyrir Vaðölduvirkjun hófust í nótt. Fjórtán vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn á áfangastað. Þrjár ferðir verða farnar með hverja.
Hófu þungaflutninga á vindmyllum í nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta