Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir drónar hröpuðu til jarðar í Lettlandi

Íbúar á þremur svæðum í Austur-Lettlandi fengu viðvörunarskilaboð send í farsíma sína um á fimmta tímanum í morgun þar sem varað var við mögulegri ógn. Lettneska ríkisútvarpið LSM greinir frá. Annar dróninn féll í Rēzekne og lenti á tómum olíutanki. Leit stendur enn yfir að hinum drónanum.Yfirvöld í sveitarfélögunum Rēzekne og Ludza hafa fellt niður kennslu í öllum skólum í sveitarfélögunum í dag vegna drónanna.Drónarnir flugu inn í lettneska lofthelgi frá Rússlandi en óljóst er hver uppruni þeirra er. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem drónar fljúga inn í lofthelgina.Sams konar viðvörun var einnig gefin út á sunnudaginn og 25. mars þegar erlendur dróni kom inn í lettneska lofthelgi frá Rússlandi og hrapaði til jarðar í Kraslava-héraði. Það var síðar staðfest að dróninn var úkraínskur og hafð
Tveir drónar hröpuðu til jarðar í Lettlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta