Landsmenn mega búast við svipuðu veðri í dag og síðustu daga. Svöl norðlæg átt liðast um landið í dag með dálitlum éljum á Norður- og Austurlandi. Sunnan til verður léttskýjað. Hiti verður nálægt frostmarki en á sunnanverðu landinu getur hann þó risið í tvö til sjö stig. Á morgun má búast við hægum vindi. Næstu daga gætu orðið skúrir eða él vestast á landinu en þurrt austan til.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðan fimm til þrettán metrar á sekúndu. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu sunnan heiða. Hiti nálægt frostmarki, en 2 til 7 stig á sunnanverðu landinu yfir daginn.Norðan átta til fimmtán á Suðaustur- og Austurlandi á morgun, annars hægari vindur. Skúrir eða él vestast á landinu, og stöku él norðaustantil, en lengst af þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 1 til 8 stig að de