Húseigendur á Ártúnshöfða hafa miklar áhyggjur af stöðu lóðarleigusamninga við Reykjavíkurborg sem eru að renna út. Þeir hafa stofnað samtök til að verja hagsmuni sína gagnvart yfirgangi borgaryfirvalda sem hafa gefið út mismunandi samninga að undanförnu og neitað að eiga fundi með lóðarhöfum.