Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Börn numin á brott með skipulögðum hætti og skýrum vilja

Sönnum eða sanngjörnum friði verður ekki náð í Úkraínu án þess að þúsundir barna sem numin voru á brott af Rússum verði skilað aftur til Úkraínu. Þetta sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sérstakur erindreki framkvæmdastjóra Evrópuráðsins um málefni úkraínskra barna, í viðtali í sjónvarpsþætti á enskumælandi stöð pólska ríkissjónvarpsins í gær, TVP World. ALLT AÐ 20.000 BÖRN NUMIN Á BROTT Yfirvöld í Úkraínu segja að allt að 20.000 börn hafi verið numin á brott með ólöglegum hætti og flutt til Rússlands og Belarús þegar innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022.Óháð rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna um málefni Úkraínu greindi frá því í mars að yfirvöld á hernumdum svæðum í Úkraínu hefðu framið glæpi gegn mannkyni með því að nema á brott og flytja úkraínsk börn nauðug burt.Þórd
Börn numin á brott með skipulögðum hætti og skýrum vilja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta