Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

13 særðust í árás Úkraínumanna á fjölbýlishús

13 eru særðir, þar af eitt barn, eftir árás úkraínska hersins á landamæraborgina Bryansk í Rússlandi í nótt samkvæmt héraðsstjóranum Aleksandr Bogomaz. Hann sagði í færslu á Telegram að árásin hefði verið gerð á tvö fjölbýlishús og eyðilagt um 20 íbúðir og 40 bíla.Þá greindi borgarstjóri Moskvu, Sergei Sobianin, frá því að að minnsta kosti fimm drónar hefðu verið stöðvaðir sem hefðu verið á leið til Moskvu.Rússar hafa lýst yfir einhliða vopnahléi á morgun og laugardaginn, í tilefni af föðurlandsdeginum mikla, sigurdegi síðari heimsstyrjaldarinnar. Úkraínumenn lýstu sömuleiðis yfir vopnahléi í gær. Rússar virtu ekki það vopnahlé.Kyiv Independent hefur eftir Volodymyr Zelensky að Rússar hafi brotið vopnahlé Úkraínumanna 1.820 sinnum í gær. Að minnsta kosti fjórir voru drepnir í árásum Rússa
13 særðust í árás Úkraínumanna á fjölbýlishús

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta