Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Samgöngumál í brennidepli í Múlaþingi

Í dag eru tíu dagar til sveitarstjórnarkosninga. Í kvöldfréttum var rætt við íbúa í Múlaþingi og þau málefni sem brenna á þeim fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.Þetta eru þriðju sveitarstjórnarkosningarnar í Múlaþingi eftir sameininguna í febrúar 2020.Samgöngumál virðast hafa tekið yfir umræðuna í Múlaþingi þegar innviðaráðherra sló af Fjarðarheiðargöng til Seyðisfjarðar. En það er einnig krafa um nýjan veg yfir Öxi og snjómokstur alla daga til Borgarfjarðar svo fleira sé nefnt. Sveitarstjórn tekur ekki ákvarðanir í samgöngumálum, þau eru á hendi ríkisins.Íbúar eru á sama máli um það að ný sveitarstjórn þurfi að geta beitt auknum þrýstingi á stjórnvöld.
Samgöngumál í brennidepli í Múlaþingi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta