Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Flutningur á vindmyllum í Vaðölduver hefst í nótt

Þungaflutningar á efniviði í vindmyllur fyrsta vindorkuvers landsins, Vaðölduvers, hefjast í nótt.Flutningarnir verða að jafnaði sex nætur vikunnar næstu 7-10 vikur. Efniviðurinn fer rúmlega 130 kílómetra leið, frá Þorlákshöfn og að Vaðölduveri, þar sem stendur til að reisa 28 vindmyllur á næstu árum.Landsvirkjun stefnir á að helmingur vindmyllanna verði gangsettur haustið 2026 og að í árslok verði vindorkuverið að fullu tilbúið og komið í rekstur.Flutningarnir eru einhverjir þeir mestu þungaflutningar sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Hver bílalest getur orðið allt að 250 metra löng, en farnar verða um 350-400 ferðir milli Þorlákshafnar og Vaðölduvers, 130 kílómetra leið, á 30 km hraða.Flutningsleiðin liggur um fimm sveitarfélög: Árborg, Ölfus, Flóahrepp, Ásahrepp og Rangárþing Ytra. Á
Flutningur á vindmyllum í Vaðölduver hefst í nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta