Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hékk í 30 mínútur og bætti Íslandsmetið í þriðja skipti

Saga Björgvinsdóttir, nemandi í Grunnskólanum á Ísafirði, endurheimti Íslandsmetið í hreystigreip í Skólahreysti þegar hún hékk í 30 mínútur og 9 sekúndur í keppni kvöldsins. Með því bætti hún fyrra met um fimm mínútur.Dagbjört Lilja Oddsdóttir átti metið áður, en hún hékk í 25 mínútur og eina sekúndu í úrslitum Skólahreysti í fyrra.Hún bætti metið tvívegis það ár, fyrst í undanriðli þegar hún sló fyrra met Sögu frá 2024. Saga svaraði því sama dag og endurheimti metið.Í úrslitakeppni Skólahreysti í fyrra bætti Dagbjört metið enn frekar og hreppti það aftur af Sögu. Hún bætti Íslandsmetið því tvisvar sama árið.Dagbjört keppir fyrir hönd Lágafellsskóla í undanriðli á morgun klukkan 19:45.Þetta er í þriðja sinn sem Saga setur Íslandsmet í greininni og á hún nú besta, þriðja besta og fimmta be
Hékk í 30 mínútur og bætti Íslandsmetið í þriðja skipti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta