Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segir að bera þurfi virðingu fyrir fagmennsku kennara í stað þess að segja þeim hvernig þeir eigi að kenna og hvaða aðferðir þeir eigi að nota. Kennarar og skólastjórnendur boðuðu frambjóðendur í Reykjavík á sinn fund í dag þar sem menntamálin voru rædd.