Dómari í máli Páls Steingrímssonar gegn Ríkisútvarpinu og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi starfsmanni RÚV, segir í niðurstöðu dómsins að ekki hafi tekist að sanna að Þóra og aðrir starfsmenn RÚV hafi brotið á friðhelgi einkalífs hans. Þau voru í dag sýknuð af öllum kröfum Páls en hann krafðist milljóna í miskabætur vegna ætlaðra brota þeirra gegn friðhelgi einkalífs hans.