Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mikilvægt að passa sig á netinu „svo maður kaupi ekki eitthvað bull“

Hátt í 100 reykvískir grunnskólanemar í öðrum bekk fjölmenntu í Tjarnarbíó í dag, þar sem sett var á svið töfraleiksýning um netöryggi. Nemendurnir sögðu mikilvægt að passa sig á netinu svo maður kaupi ekki eitthvað bull.Lárus Blöndal Guðjónsson, betur þekktur sem Lalli töframaður, stendur fyrir sýningunni. Hann segir hugmyndina hafa sprottið þegar hann sá um fræðslu fyrir unglinga um internetöryggi.„Skólar voru að biðja um fyrirlestra fyrir yngri krakka sem skiptir svo rosalega miklu máli, því börn eru komin á internetið frá fæðingu. Það er ekkert til fyrir svona unga krakka, þannig að ég fékk styrk til að setja upp sýningar fyrir krakka í grunnskólum. Allir skólar bara já takk, og það er töfrasýning með Lalla töframanni, með internetöryggisboðskap.“
Mikilvægt að passa sig á netinu „svo maður kaupi ekki eitthvað bull“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta