Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kindur og grísir lifa í sátt og samlyndi

Kindur og grísir láta fara vel um sig og lifa í sátt og samlyndi í Daldýrð í Fnjóskadal. Það var fyrir slysni sem grísirnir komust inn í fjárgerðið til kindanna en þeim virðist líka það vel.Kindur og grísir eru ekki einu tegundirnar sem deila rými heldur eru m.a. naggrísir og peking-hænur í náinni sambúð og kiðlingar hafa gert sig heimakomna í hitalampanum hjá grísunum.Umburðarlyndi er allt sem þarf að mati eigenda Daladýrðar en dýrin njóta samvistanna og gengur sambúðin vel.
Kindur og grísir lifa í sátt og samlyndi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta