Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina kasta víðara neti við framkvæmd fjárlaga en þær fyrri og að það skýri hærri heildarfjárhæð áhættu. Minnisblað fjárlaga- og greiningardeildar barst fjárlaganefnd 24. apríl.Heildarfjárhæð áhættu er þar metin á meira en 57 milljarða króna. „Það er mun hærri fjárhæð heldur en fram hefur komið í fyrri áhættumötum,“ segir í minnisblaðinu. Daði Már sagði Vísi að breytt verklag skýrði þetta.Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, situr í fjárlaganefnd. Hann segir skýringu Daða Más ekki standast skoðun.„Ríkisstjórnin var ekki að byrja í gær. Þeir hafa haft nægan tíma, komið með tvær fjármálaáætlanir. Samt sem áður erum við að sjá hér augljós hættumerki sem benda öll í sömu áttina – sem er að menn eru búnir að missa tökin