Börn verða ekki vistuð í brottfararstöð, samkvæmt breytingartillögu meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð.Formaður nefndarinnar reiknar með því að frumvarpið verði tilbúið til afgreiðslu síðar í mánuðinum.Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð var lagt fram á Alþingi í nóvember. Hljóti frumvarpið samþykki í þinginu verður lögreglu heimilt að frelsissvipta fólk sem er búið að ákveða að senda úr landi eða ef mál þeirra er til meðferðar og getur leitt til brottflutnings, í þar til gerðum búðum.Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, vonast til þess að hægt verði að leggja frumvarpið fram fyrir þinglok ef dagskrá þingsins leyfir.„Við erum að vinna þarna nokkrar breytingartillögur og erum að ljúka yfirferð á þeim og f