Coca-Cola á Íslandi mun á næstu dögum hefja sölu á hinni vinsælu 500ml Coca-Cola dós, betur þekktri sem súperdósin. Í tilkynningu segir að endurkoma vörunnar komi í kjölfar mikils ákalls frá neytendum og viðskiptavinum undanfarin ár og nú sé komið til móts við þær óskir.