Koffín var efst á lista yfir lyfjaleifar sem fundust í yfirborðsvatni á tveimur stöðum við mælingar Umhverfis- og orkustofnunar í vetur. Stofnunin segir mikilvægt að fólk skili ónotuðum lyfjum til förgunar í apótek og sturti þeim aldrei í niðurföll eða salerni.Skimað hefur verið fyrir efnum á vaktlista Evrópusambandsins frá 2018. Þar eru efni sem geta haft áhrif á vatnalíf, til dæmis verkjalyf, geðlyf, hjarta- og æðalyf, sýklalyf, kynhormón og fleira. Efnin berast með þvagi og hægðum en líka þegar lyfjum er sturtað í salerni.Umhverfis- og orkustofnun skimaði eftir lyfjaleifum í Kópavogslæk, Reykjavíkurtjörn, Varmá og Ölfusá í nóvember. Magn sem telst til lyfjaleifa fannst í Kópavogslæk og Reykjavíkurtjörn en í Varmá og Ölfusá mældust efni í of litlu magni til að hægt sé að segja til um það