Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

RÚV og Þóra sýknuð í byrlunarmáli Páls

RÚV og Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun og fyrrverandi ritstjóri Kveiks, voru sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í svokölluðu byrlunarmáli sem Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, höfðaði.Málið snerist um meint brot á friðhelgi einkalífs Páls þar sem því var haldið fram að sími hans hefði verið afritaður á meðan hann lá á gjörgæslu og gögnum komið í hendur fjölmiðla. Þinghaldið í málinu var lokað og því liggja forsendur dómsins ekki fyrir, en Berglind Svavarsdóttir lögmaður staðfestir að sýknað hafi verið í málinu.Fréttin verður uppfærð
RÚV og Þóra sýknuð í byrlunarmáli Páls

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta