Vesturport vinnur að sjónvarpsþáttaröð upp úr gamansýningunni Á rauðu ljósi eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur sem verður sýnd á Rúv á næsta ári. Handritaskrif annarrar þáttaraðar af Verbúðinni eru jafnframt langt komin og eru tvær kvikmyndir í bígerð hjá Vesturporti.