Ólafur Þ. Harðarson og Bogi Ágústsson segja þingmenn bera alla ábyrgð á því hve miklar tafir séu á talningu atkvæða á kjördegi í kosningum hér á landi. Ýmsar breytingar hafi verið lagðar til sem gætu flýtt öllu ferlinu sem þingmenn hafi ekki orðið við. Þá segist Bogi myndu stefna ríkinu og fara með það alla leið hefði hann tök á því til að fá misvægi atkvæða milli kjördæma leiðrétt.