Hljómsveitin Náttsól lagðist af eftir menntaskólaárin en þær hafa ekki setið auðum höndum síðan. Elín kláraði BA-nám í leiklist við LHÍ og gefur nú út músík undir nafninu Elín Hall. Hrafnhildur fluttist um tíma út til Amsterdam og kláraði fjögurra ára BA-nám í djassöng og samhliða hefur hún gefið út tónlist sem RAVEN. Guðrún er útskrifuð læknir en hefur þó alltaf verið með tónlistina á hliðarlínunni, meðal annars gefið út plötu undir listamannsnafninu RÚN.Þær sögðu frá laginu Flýttu þér hægt í Popplandi.„Nú langar okkur fyrst og fremst að syngja á íslensku. Áfram er hlustendum lofað fókus á breiðar harmóníur og mikla söngveislu. Lagið er hvatning til landsmanna um að anda rólega í gegnum leiðinda sudda og súld, því allt er víst hægt með rétta hugarfarinu, og smá D út í kaffinu.“