Tafir á afgreiðslu umsókna um skattfrádrátt vegna rannsóknar- og þróunarverkefna hafa valdið fyrirtækjum verulegum óþægindum undanfarið. Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís), segir stofnunina hafa verið komna verulega eftir á en nú sé unnið markvisst að því að bæta stöðuna.