Kjarnafæði-Norðlenska hefur óskað eftir lóð hjá Akureyrarbæ fyrir átta þúsund fermetra höfuðstöðvar, sláturhús og kjötvinnslu. Verði af því, fer fyrirtækið frá Svalbarðseyri, þar sem það er stærsti vinnuveitandinn sveitarfélagsins.Kjarnafæði-Norðlenska er með ýmsa starfsemi, slátrun, pökkun og skrifstofur, á þremur stöðum við Eyjafjörð. Við Grímseyjargötu og Fjölnisgötu á Akureyri og á Svalbarðseyri þar sem starfsemin er umfangsmest. Og er það stærsti vinnustaður Svalbarðstrandarhrepps.Þar vinna um hundrað manns og fjörutíu þeirra búa Svalbarðseyrarmegin við Eyjafjörð. Breytingar gætu verið framundan því framkvæmdastjóri Kjarnafæðis-Norðlenska óskaði í apríl eftir að hefja viðræður við Akureyrarbæ um lóð til að færa alla starfsemina við Eyjafjörð undir sama þak. Þar yrðu nýjar höfuðstöðvar