Koffín var efst á lista yfir lyfjaleifar sem fundust í yfirborðsvatni á þremur stöðum við mælingar Umhverfis- og orkustofnunar í vetur. Stofnunin segir mikilvægt að fólk skili ónotuðum lyfjum til förgunar í apótek og sturti þeim aldrei í niðurföll eða salerni.Skimað hefur verið fyrir efnum á vaktlista Evrópusambandsins frá 2018. Þar eru efni sem geta haft áhrif á vatnalíf, til dæmis verkjalyf, geðlyf, hjarta- og æðalyf, sýklalyf, kynhormón og fleira. Efnin berast með þvagi og hægðum en líka þegar lyfjum er sturtað í salerni.Lyfjaleifar greindust í Kópavogslæk, Reykjavíkurtjörn, Varmá og Ölfusá, við skimun Umhverfis- og orkustofnunar í nóvember. VERKJALYF, SÝKLALYF OG OFNÆMISLYF Koffín var efst á lista alls staðar nema í Varmá, þar sem meira fannst af verkjalyfinu parasetamól. Íbúprófen