Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fagnar skoðunum og tillögum um ESB-spurninguna

Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, fagnar umsögnum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem lagt hefur til að breytingar verði gerðar á spurningunni sem lögð verður fyrir landsmenn í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður.„Við höfum nú fengið álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, Hagfræðistofnunar, Lagastofnunar, Feneyjarnefndarinnar og fjölda umsagnaraðila á okkar fund,“ segir hann.„Nú tel ég bara að næsta stig í málinu sé að fara að undirbúa það að rita álit meirihlutans og auðvitað minnihlutans líka,“ segir Pawel.Með því yrði málið afgreitt úr utanríkismálanefnd og tekið til annarrar umræðu á Alþingi. Lögð hefur verið áhersla á að málið verði klárað á Alþingi fyrir 29. maí svo hægt verði að framkvæma þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst. VILJA BREYTA SPURNINGU
Fagnar skoðunum og tillögum um ESB-spurninguna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta