Landsréttur framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er grunaður um alvarlega líkamsárás, heimilisofbeldi, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni og íkveikju og hótanir í garð eiginkonu sinnar. Hann er einnig grunaður um að beita opinbera starfsmenn ofbeldi og hóta þeim.Maðurinn liggur undir grun vegna ítrekaðra brota gegn eiginkonu sinni allt frá því lögregla var fyrst kölluð til í febrúar 2024 þar til hann var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald 4. janúar. Kona mannsins hefur lýst miklum ótta við manninn og telur að hann endi á því að drepa hana.Maðurinn hefur verið ákærður og réttað yfir honum en dómur var enn ekki fallinn þegar gæsluvarðhaldið var framlengt í gær. Hann sætir gæsluvarðhaldi til 15. maí að óbreyttu.Maðurinn sótti um alþjóðlega vernd í febrúar 2023 en var synjað í