Myndlistarkonan Sigrún Guðjónsdóttir, betur þekkt sem Rúna, er látin, 99 ára að aldri. Listaferill Rúnu spannaði átta áratugi og starfaði hún þvert á ólíka miðla málaralistar, leirlistar, hönnunar og myndlýsinga. Hún var meðal ástsælustu myndlistarmanna þjóðarinnar, var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.