„Umfjöllunin um Gauksstaði hefur að mati Barna- og fjölskyldustofu sýnt hve mikilvægt það er að fósturforeldrar fái viðeigandi fræðslu og að eftirlit sé með þeirra störfum til að stuðla að öryggi og velferð fósturbarna,“ segir í svari frá Guðrúnu Þorleifsdóttur, framkvæmdastjóra gæðasviðs hjá Barna- og fjölskyldustofu, um meðferð og lærdóm stofnunarinnar af Gauksstaðamálinu svokallaða. Fréttastofa hefur fjallað um þetta mál síðustu vikurnar og rætt við fólk sem var á heimilinu sem hefur lýst tilfellum líkamlegs ofbeldis, andlegs ofbeldis og harðræðis.Barna- og fjölskyldustofa er hlynnt rannsókn stjórnvalda á starfsemi fósturheimila. Fjölmörgum spurningum um starfsemi Gauksstaða og kvartanir fósturbarna til Barnaverndarstofu er ósvarað. RÚMLEGA 20 BÖRN KVÖRTUÐU TIL BARNAVERNDARSTOFU Gauk