Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir engar aðgerðir þess í tengslum við kjaraviðræður við Icelandair hafa leitt til þess að ekki hafi tekist að manna áhöfn flugs síðdegis í gær. Flugi Icelandair til Kaupmannahafnar síðdegis var aflýst.Skýringin á því er líklega mannekla eða skipulag hjá Icelandair, segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA. Hvorki formlegar né óformlegar verkfallsaðgerðir standa yfir.„Það er ekki verið að ræða neitt slíkt,“ segir Jón Þór. „Það er langur aðdragandi að slíku.“Samningur Samtaka atvinnulífsins og Icelandair við FÍA rann út í lok september. Ekki hefur náðst samkomnulag um nýjan samning og SA vísaði kjaradeilunni til ríkissáttasemjara í apríl.Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í gær að aflýsingar vegna áhafnarskorts væru mjög sjaldgæfar, en