Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hluthöfum í Eyjagöngum fjölgar

Fleiri fjárfestar hafa bæst í hóp þeirra sem lagt hafa fé í fyrirtækið Eyjagöng sem stundar jarðvegsrannsóknir vegna hugsanlegra ganga milli lands og Vestmannaeyja. Fjármögnun er því lokið.Eimskip, Olís, stéttarfélögin Drífandi, Jötunn og Verðandi í Vestmannaeyjum, innviðasjóðurinn Innviðir fjárfestingar II og fjárfestingafélagið MK 4 í eigu Magnúsar Kristinssonar og fjölskyldu hafa bæst í hluthafahópinn. Í tilkynningu frá Eyjagöngum segir að innkoma innviðasjóðsins færi verkefninu mikla vigt. Það sé vegna þess að hann sé nær eingöngu fjármagnaður af lífeyrissjóðum og sérhæfi sig í uppbyggingu hagrænna og félagslegra innviða.Borinn Karl prins.Eyjagöng
Hluthöfum í Eyjagöngum fjölgar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta