Í tilefni 60 ára afmælis Tónlistarskóla Mosfellsbæjar tróðu 270 börn upp fyrir fullu húsi í íþróttahúsinu að Varmá.Tónleikarnir voru hluti af verkefninu Söngvavor í Mosfellsbæ, sem á að færa börnum lifandi tónlistarupplifun, efla sönggleði og gefa þeim tækifæri til að koma fram á opinberum vettvangi.Söngvavorið er samstarfsverkefni tónlistardeildar Listaskóla Mosfellsbæjar, sem tónlistarskólinn tilheyrir, og leikskóla bæjarins.Alls mynduðu 40 nemendur Listaskóla Mosfellsbæjar hljómsveit, en 180 fimm ára börn úr leikskólum Mosfellsbæjar ásamt 50 forskólabörnum sem stunda nám við tónlistardeild Listaskólans sungu og dönsuðu.