Leó Snæfeld hefur unnið sem barþjónn í tæp 12 ár og var nýlega krýndur Íslandsmeistari barþjóna 2026. Hann hefur mikinn metnað fyrir íslenskri barmenningu og sér fyrir sér glæsta framtíð ef barþjónar landsins halda vel á spöðunum. Honum þykir þó mikilvægt að sinna starfinu á skynsaman hátt og hætti til að mynda sjálfur að drekka fyrir sex árum eftir að hafa verið langt leiddur í neyslu áfengis og fíkniefna.Pétur Magnússon ræddi við Leó í þættinum Meðal fólks á Rás 1 um íslenska barmenningu og edrúmennskuna. Hann hefur haldið áfram að vinna sem barþjónn og reynir að gera starfsumhverfi og líðan íslenskra barþjóna betri, einna helst með félagsskap sem hann stofnaði og kallast Sjálfselski klúbburinn. EF EKKERT ER AÐ GERAST ÞÁ ÞARF EINHVER AÐ GERA EITTHVAÐ Leó er fæddur árið 1997 og vinnur