Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Staðfest að smit barst milli manna

Rannsóknir á hanta-veirunni sem herjar á farþega og áhöfn skemmtiferðaskipsins Hondius hafa leitt í ljós að smitið hefur borist milli manna. Þessu greindi Aaron Motsoaledi, heilbrigðisráðherra Suður-Afríku, frá í dag.Hann sagði suðurafrískri þingnefnd að bráðabirgðarannsóknir sýndu að hanta-veiran sem greindist væri af Andes-afbrigði. „Og það vill svo til að það er eina afbrigðið af 38 sem þekkt er að valdi smiti frá einni manneskju til annarrar.“Spænsk yfirvöld hafa heimilað skipinu að koma til hafnar á Kanaríeyjum þar sem meta farþega og áhafnar verður skoðuð áður en fólkið heldur lengra.Hondius úti fyrir Grænhöfðaeyjum í fyrradag.EPA / ELTON MONTEIRO
Staðfest að smit barst milli manna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta