Þingmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis skiluðu í gær af sér tveimur umsögnum um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið um aðild. Tillögurnar fara til utanríkismálanefndar Alþingis sem hefur málið á sinni könnu og leggur til hvað verði gert í framhaldinu. TVÆR TILLÖGUR AÐ NÝRRI SPURNINGU Stjórnarliðar skiluðu frá sér einni umsögn og stjórnarandstæðingar annarri. Í báðum er lagt til að spurningunni sem lögð verður fyrir landsmenn, ef af þjóðaratkvæðagreiðslu verður, verði breytt. Eins vilja þingmennirnir að svarmöguleikarnir verði einfaldaðir.Meirihlutinn leggur til að landsmenn verði spurðir hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið í stað spurningar ráðherra um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.