Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Áfram éljaveður norðan og austan til

Veðrið ber meiri blæ vetrar en sumars á norðan- og austanverðu landinu þar sem útlit er fyrir él og hita nálægt frostmarki. Bjartara verður yfir annars staðar á landinu en þar verður þó ekki sérstaklega hlýtt, þrjú til sjö stig.Veðrið verður svipað fram á föstudag þegar vestlæg átt verður ríkjandi.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðaustan átta til þrettán metrar á sekúndu og él, en yfirleitt bjart veður sunnan- og vestanlands. Líkur á stöku skúrum syðst á landinu seinnipartinn.Norðlæg átt þrír til átta á morgun, en heldur hvassara á suðaustanverðu landinu. Stöku él á austanverðu landinu og sums staðar einnig norðantil, en yfirleitt bjart í öðrum landshlutum.Hiti um frostmark norðan- og austantil en að 7 stigum sunnan- og vestanlands.
Áfram éljaveður norðan og austan til

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta